Niður­staða í for­manns­kjöri VR – Ragnar endurkjörinn - Sjáðu tölurnar

At­kvæða­greiðslu í for­manns­kjöri stéttarfélagsins VR lauk klukkan 12 í dag en hún hafði verið í gangi síðan á mið­viku­daginn 8. mars. Ragnar Þór Ingólfsson, núverandi formaður, var endurkjörin með rúmlega sextíu prósent atkvæða gegn fjörutíu prósentum frá Elvu Hrönn Hjartardóttur, starfsmanni VR.

Niður­staða átti að vera kynnt klukkan rúm­lega eitt í dag en henni seinkaði til hálf tvö. Kosning var raf­ræn en bara Rangar Þór og Elva voru í framboði til formanns. Sextán manns buðu sig fram til stjórnar VR.

Ragnar Þór Ingólfsson hlaut 6.842 atkvæði eða 57,03 prósent atkvæða

Elva Hrönn Hjartardóttir hlaut 4.732 atkvæði eða 39,44 prósent atkvæða

3,53 prósent tóku ekki afstöðu. Atkvæði greiddu 11.996. Á kjörskrá voru alls 39.206 VR félagar. Kosningaþátttaka var því 30,6 prósent.

Kosninga­bar­áttan var hörð og gengu á­sakanir um ó­heiðar­leika á víxl meðal fram­bjóð­enda og stuðnings­manna þeirra.

Hring­braut óskar Ragnari til hamingju með endurkjörið