Neyddist til að leita læknis­að­stoðar út fyrir land­steina: „Það var ekki hlustað“

Hin ní­tján ára Alice Viktoria Kent hefur gengið í gegnum erfið veikindi síðast­liðin tvö ár og hefur að sögn móður hennar, Dag­nýjar Hrannar Bjarna­dóttur, mætt al­gjöru skilnings­leysi ís­lensks heil­brigðis­kerfis. Dag­ný greinir frá þessu í sam­tali við Frétta­blaðið.

Alice er nú komin frá Þýska­landi eftir að hafa gengið undir aðra að­gerð þar í landi vegna sjúk­dómsins AVCS eða Abdominal Vascular Compression Syndrome sem er æða­þrenginga­heil­kenni í kvið.

Dag­ný segir ferðina til Þýska­lands og að­gerðina sem Alice þurfti að gangast undir hafa kostað fjöl­skylduna rúmar sjö milljónir króna. Ný­lega hafa þau fengið þær fréttir að Sjúkra­tryggingar muni ekki taka þátt í kostnaðinum.

Veikindi Alice byrjuðu árið 2019 en þá fékk hún mikla kvið­verki og fór því í ýmsar skoðanir á Barna­spítala Hringsins, engar skýringar fundust þó.

Dag­ný segir kunningja þeirra hafa spurt hvort Alice gæti mögu­lega verið með sjúk­dóminn MALS. eða Median Arcu­ate Syndrome. Hún segir ein­kenni Alice hafa passað vel við það.

Alice fór því í að­gerð sem Dag­ný segir hafa gengið mjög vel en einungis í fjóra mánuði, og þá hafi ein­kennin komið aftur. Dag­ný óskaði því eftir að frekari æða­vanda­mál yrðu úti­lokuð en að sögn hennar var ekki hlustað.

Fjöl­skyldan leitaði því til Þýska­lands, þau óskuðu eftir læknis­að­stoð þar og fengu sam­þykki og stuttu síðar var fram­kvæmd að­gerð á henni þar.

„Hún fer í þessa að­gerð og það gengur rosa­lega vel og hún fer að geta borðað aftur og verkirnir fara,“ segir Dag­ný Hrönn og bætir við að með tímanum hafi Alice fundið fyrir verk neðst í kviðar­holinu.

Í októ­ber í fyrra fóru þau aftur til Þýska­lands til að láta skoða Alice. Læknarnir bundu vonir við að verkirnir færu með sjúkra­þjálfun en Dag­ný segir verkina hjá Alice einungis hafa versnað.

Alice var því lögð inn á meltingar­deild þar sem hún var skoðuð út frá meltingunni, æða­vanda­málið var þó aldrei skoðað. „Við erum þarna í þrjár vikur og það er engin niður­staða,“ segir Dag­ný.

Þau hafi því óskað eftir því að Alice yrði send til Þýska­lands en spítalinn hafi ekki orðið við þeirri beiðni. Því hafi hún gripið til þess ráðs að bóka flug út til Þýska­lands sjálf.

Að sögn Dag­nýjar tóku Sjúkra­tryggingar Ís­lands þátt í kostnaði vegna fyrri að­gerðar Alice í Þýska­landi en hafa nú neitað niður­greiðslu vegna síðari að­gerðarinnar. Þeir hafi ekki haft nægan tíma til að sam­þykkja um­sóknina um að­gerðina áður en hún var gerð.

Fjöl­skylda Alice hefur sett af stað söfnun fyrir hana á síðunni GoFundMe vegna að­gerðarinnar sem fæst ekki niður­greidd af SÍ en einnig er hægt að leggja þeim lið með eftir­farandi styrktar­reikningi:

Kenni­tala: 301002-2380

Reiknings­númer: 0528-26-301003