Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar leggja fram að nýju frumvarp sem heimilar netverslun með áfengi. Þetta sagði hún á Alþingi í dag. Hún sagði frumvarpið væri lagt fram til að jafna stöðu innlendrar og erlendrar verslunar og undirstrika að lögmæti innlendra netverslunar með áfengi.
„Hinir frábæru þættir Verbúðin er að minna okkur á margt þessa dagana, bæði gott og slæmt, t.d. furðu tíma þegar við máttum ekki drekka bjór,“ sagði Hildur á Alþingi í dag.
„Það er auðvitað klassískur brandari að rifja upp varnaðarorðin sem féllu hér innan þessara veggja þegar það var til umræðu og þykir kannski um margt kostulegt í dag en er kannski ekki svo ýkja öðruvísi en þau orð sem eru að falla hér enn þann dag í dag þegar við erum að tala um frjálsa verslun á áfengi,“ bætti hún við.
Hún sagði að það mætti stundum halda af umræðunni um frjálsa verslun áfengis að það væri lykilatriði fyrir lýðheilsu, og gegn því böli sem áfengi getur vissulega verið, að opinberir starfsmenn stæðu við búðarkassann.
„Það er ákveðinn raunveruleiki að öll frumvörp sem hafa haft með einhvers konar útfærslu á að gera þessa verslun, frjálsari, hafa dagað uppi,“ sagði Hildur sem vonaðist samt sem áður að sömu óttaslegnu rökin sem voru á Alþingi fyrir um 35 árum síðan um bjórinn fari minnkandi.