Net­verjum leist ekki á blikuna vegna Víðis - Ætluðu að hefja söfnun

Fréttir af því að Víðir Reynisson hafi þurft að fresta fríi sínu í gær eftir að byrjaði að gjósa vöktu nokkra athygli. Flestir, ef ekki allir, höfðu mikla samúð með manninum, sem hefur staðið í ströngu með forystu sinni í baráttunni við Covid-19. Einhverjir vildu hefja söfnun fyrir hann svo hann kæmist í gott frí.

„Hvað segiði um þjóðarsöfnun fyrir Víði og fjölskyldu, 3 vikna ferð á lúxussnekkju í karabíska, ein og símalaus?“ skrifar einn notandi á Twitter við góðar viðtökur. Annar viðrar þá hugmynd um að Icelandair gefi fjölskyldunni flug að gjöf.

Jónas Már, lögfræðingur og fyrrum blaðamaður, vill þá að sérstakt frumvarp sem tryggir Víði frí verði lagt fram á Alþingi:

Uppistandarinn og grínistinn Villi Neto byrjaði segir þá einfaldlega: #fríVíðir og birtir skemmtilegt myndband með: