Net­verjar undra sig á næstu af­léttingum: „Bíddu á að af­nema ein­angrun en ekki grímu­skyldu?“

Allt stefnir í að stórt skref verði stigið í af­léttingum á föstu­daginn. Willum Þór Þórs­son, heil­brigðis­ráð­herra, sagði í sam­tali við Vísi í gær að geta megi ráð fyrir að af­léttingar­skref tvö verði tekið sem átti að taka gildi 24. febrúar.

Sam­kvæmt því má 200 mans koma saman, eitt þúsund manns á sitjandi við­burðum. Skemmti­staðir og veitinga­staðir megi hafa opið til eitt en síðustu gestir mega koma inn fyrir mið­nætti. Þá eru hins vegar nokkrar breytingar

Net­verjar skilja hins vegar engan veginn á hvaða for­sendum nýju tak­markanirnar byggjast. Sam­kvæmt þeim verður hætt með ein­angrun og sótt­kví en fólk má hins vera of lengi á veitinga­stöðum.

Lög­maðurinn Árni Helga­son benti fyrstur á þetta skrýtna mis­ræmi.

Veitingamaðurinn Steinþór Helgi Atnsteinsson, skilur ekki af hverju barir mega ekki vera lengur opnir á meðan einangrun og sóttkví er afnumið.