Öllum takmörkunum verður aflétt á miðnætti á föstudaginn og er ljóst að fjölmargir ætla nýta tækifærið og skella sér út á lífið.
Grímuskylda er fyrir bí og nándartakmarkanir. Skemmtanahald getur farið fram eins og fyrir heimsfaraldurinn og leikhúsin geta opnað dyrnar á ný.
„Það eru tímamót,“ sagði Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra þegar hann tilkynnti um afléttingarnar að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.
Netverjar virðast flestir ánægðir með ákvörðun ríkisstjórnarinnar þó einhverjir eru ekki alveg vissir.
Hér í Hollandi er líka öllu sleppt á föstudaginn, sem er einmitt þegar Karneval byrjar. Sem alla jafna er eitthvað dæmi þar sem fullorðið fólk er öskufullt úti á götu í marga daga samfleytt. Og þessu var aflýst í fyrra. Þannig að já, The Purge er yfirvofandi.
— Bjarki Ármannsson (@bjassi103) February 23, 2022
Rauð klamedíuviðvörun í miðbænum um helgina.
— T-pain (@GuTryggvi) February 23, 2022
Ég var einmitt að búa mig undir að þæfa lopavettlingana fyrir djammið framundan um helgina!
— Una Sighvatsdóttir (@unasighvats) February 23, 2022
Hér í Hollandi er líka öllu sleppt á föstudaginn, sem er einmitt þegar Karneval byrjar. Sem alla jafna er eitthvað dæmi þar sem fullorðið fólk er öskufullt úti á götu í marga daga samfleytt. Og þessu var aflýst í fyrra. Þannig að já, The Purge er yfirvofandi.
— Bjarki Ármannsson (@bjassi103) February 23, 2022
Það besta við afléttingu takmarkana er að “Sóttólfur” hættir að vera thing
— Kolbrún Birna (@kolla_swag666) February 23, 2022
Var alltaf að gera eh svona looks árið 2020 og kjörið tækifæri að deila því í dag sem inspo fyrir djammið um helgina litlu lömbin mín. Ég tek frekjukast ef þið verðið með boring makeup pic.twitter.com/NHYoxu0HRo
— Kara Kristel (@karafknkristel) February 23, 2022
Afléttingar á föstudaginn, þýðir það nokkuð að fólki fari aftur að finnast í lagi að setjast við hliðina á manni í strætó? 😬
— Gréta Sigríður Einarsdóttir (@gretasigga) February 22, 2022
Kannski hefðu takmarkanir skilað meiru ef það hefðu ekki verið veittar endalausar undanþágur?
— Arna (@arna_kh) February 23, 2022
Ef skólum hefði verið lokað til 10.jan eins og sóttvarnarlæknir lagði til?
Ef það hefði ekki verið lagst í afléttingar þegar smitum var að fjölga dag frá degi?
Nei, segi bara svona pic.twitter.com/98gdZg9il7
Er þetta ekki bara augljóst að þess vegna voru allar þessar tilslakanir, til að réttlæta afléttingar?
— Hans Jónsson 🏳️⚧️🏳️🌈🏴☠️ (@xP_HansJonsson) February 23, 2022
Þetta gerðist á 10 mínútna tímabili síðustu helgi:
— Arnar (@arnareyfells) February 23, 2022
Kona meisuð fyrir framan Caruso, lögregluþjónn laminn og í kjölfarið komu aðrar lögreglur og skriðtækluðu manneskjuna sem lamdi hana niður og gaur hoppandi ofan á bíl við Prikið.
Verður gaman að sjá hvað gerist við afléttingar.