Netverjar syrgja ástsæla mjólkurvöru: „Hræðileg tímamót í sögu íslands“

Upp varð fótur og fit á samfélagsmiðlinum Twitter í gær þegar greint var frá því að súrmjólkin með hnetu og karamellu í brúnu umbúðunum sem KS hefur framleitt síðustu áratugi sé nú hætt í framleiðslu.

„Mér hafa borist þær hræðilegu fréttir að brúna súrmjólkin frá KS sé hætt í framleiðslu. Hún fékk 35 góð ár, blessunin. Ef þið finnið svona fernu í búð þá bið ég ykkur að njóta hennar í botn,“ skrifar Grétar Þór á Twitter og er óhætt að segja að fréttirnar hafi farið illa í aðra netverja.

Margir vekja sérstaka athygli á umbúðunum, brúnu fernunni með hnetum framan á, en þær hafa haldist óbreyttar um árabil og vekja upp gamlar og góðar minningar. „Hræðileg tímamót í sögu Íslands,“ segir ein.

Brotthvarf brúnu súrmjólkurinnar ýfir einnig upp gömul sár þar sem nokkrir segjast sakna annarra vara sem hafa nú hætt í framleiðslu, eins og Biomjólk, Húsavíkur trefjajógúrtsins, og KS súrmjólkurinnar með jarðaberjabitum. „Af hverju að breyta sigurformúlu?“ spyr einn. „Þyngra en tárum taki,“ segir annar.

Það virðist jafnvel vera sem svo að fréttirnar hafi reynst mörgum erfiðari að melta heldur en úrslit kosninganna. „Hvar er undirskriftalistinn? Skítt með niðurstöður kosninganna, hér er málefni sem við getum fylgt okkur um og myndað samstöðu,“ skrifar einn.

Þrátt fyrir að flestir virðist vera að frétta af brotthvarfinu fyrst núna bendir einn netverji á súrmjólkin hafi ekki verið framleidd í rúma níu mánuði, eða frá því í lok desember. „En jú svekkjandi,“ skrifar hann þó.