Flugfélagið PLAY hefur flug til New York þann 9. júní næstkomandi og er miðasala nú þegar hafin hjá flugfélaginu. PLAY hyggst fljúga daglega til New York en þetta er þriðji áfangastaður flugfélagsins í Bandaríkjunum á eftir Boston og Washington.
Flugfélagið mun fljúga til New York Stewart International flugvallarins sem er samkvæmt tilkynningu Play í 75 mínútna fjarlægð frá Time Square á Manhattan eyju.
Netverjar sem hafa vanið komur sínar til New York borgar eða búið þar um tíma segja þetta hins vegar draumsýn hjá Play. Einar Karl Friðriksson, sem bjó meðal annars í efri hluta New York sem námsmaður í Ithaca háskóla segir þetta vera um 100 kílómetra leið á bíl og almenningssamgöngur séu slæmar.
"eini ókosturinn"
— Einar Karl Friðriksson (@EinarKF) February 1, 2022
...
fyrir utan það að vera ca 100 km frá NYC. pic.twitter.com/awtYqLSgym
Einar vitnar í Birgi Jónsson forstjóra Play sem segir að „eini ókosturinn“ við flugvöllinn er að svo fáir kannist við hann. Hann bendir á kort sem sýnir staðsetningu flugvallarins og skrifar í kaldhæðni „eini ókosturinn.“
Í athugasemd undir færslu Einars bendir Ásdís á að lestarferðin inn í borgina sé ein klukkustund og 40 mínútur er en það tekur 17 til 25 mínútur að komast frá flugstöðinni með rútu á lestarstöðina.
Var einmitt að skoða þetta. Lestarferðin er 1 klst 40 mínútur frá stöð sem þú ert 17-25 mínútur að komast á með rútu frá flugstöðinni. Þannig að ferðalagið er alltaf allavega 2 tímar inn á Central Station. Get ekki sagt að þetta heilli mjög ef fólk ætlar inn í borgina.
— Ásdís (@asdiso) February 1, 2022
Rafn Steingrímsson, sem býr í Bandaríkjunum, birtir einnig frétt af tilkynningu Play og skrifar „Flugvöllur sem er 1:30 tíma frá borginni í engri umferð. Þetta verður sem sagt ónothæf þjónusta.“
Flugvöllur sem er 1:30 tíma frá borginni í engri umferð. Þetta verður semsagt ónothæf þjónusta. pic.twitter.com/VqhX4p1BZO
— Rafn Steingríms 🇺🇸🇮🇸🌐🏳️🌈🌮 (@rafnsteingrims) February 1, 2022
Guðmundur Egill skrifar á twitter síðan að „ástæðan fyrir því að þetta ódýr flugvöllur er að hann er pínulítill og með below average samgöngur. Ekkert af stóru USA flugfélögunum flýgur í gegnum þennan völl þannig tengiflug eru nánast engin,“ skrifar Guðmundur og birtir einnig myndir máli sínu til stuðnings.
Samhengið. pic.twitter.com/RaLX6JwJCL
— Guðmundur Egill (@gudmegill) February 1, 2022