Net­verjar koma með ný slag­orð fyrir Aspelund þar sem „ganga um gólf fyrir Þór­ólf“ gengur ekki lengur

Guð­rún Aspelund hef­ur ver­ið ráð­in sótt­varna­læknir við em­bætt­i land­­lækn­is frá og með 1. sept­em­ber 2022.

„Ég hef öðl­ast góða sýn á starf sótt­varn­ar­­lækn­is und­an­far­in ár og sé í starf­in­u tæk­i­­fær­i til að láta gott af mér leið­a. Ég geri mér grein fyr­ir að starf­in­u fylg­ir mik­il á­byrgð og ég hlakk­a til að tak­ast á við verk­efn­in sem eru fram undan,“ seg­ir Guð­rún í til­­kynn­ing­u á vef land­­lækn­is.

Net­verjar hafa skemmt sér með ráðningu Guð­rúnar í dag og leikið sér að því að finna slag­orð fyrir hana er næsti far­aldur skellur á. Eins og flestir muna urðu „Ég hlýði Víði“ og „Ég geng um gólf fyrir Þór­ólf“ vin­sæl slag­orð í far­aldrinum.

Martin Sindri hóf þráðinn og þar segir hann: „Ég geng um gólf fyrir Þór­ólf verður nú: Ég tek fjar­fund fyrir Aspelund“

Hlað­varps­stjórnandinn og sjón­varps­maðurinn Hjör­var Haf­liða­son leggur einnig orð í belg og leggur til: „Ég sleppi því að fara í sund fyrir Aspelund“

Gunnar Marel hendir einnig í eitt slag­orð og segir: „Ég vil ná á Grund- hlýði því Aspelund“

Dæmi nú hver fyrir sig en skulum öll vona að þessi slag­orð verði ó­þarfi.