Net­verjar gera stólpa­grín af Fær­eyingum: „Fær­eysk fiska­­nöfn eru ná­­kvæm­­lega jafn­­fyndin og þú heldur“

Ís­land er lítið land þó Dorri Moussa­i­eff sé ekki sam­mála því. Við getum þó huggað okkur við það að frændur okkar í Fær­eyjum séu minni og fá­mennari en við og virðast Ís­lendingar á twitter vera njóta þess í dag.

Ís­lendingum hefur lengi fundist fær­eyska fyndið af­brigði af ís­lensku en nú á­kvað einn twitter notandi að birta fær­eysk fiska­nöfn á netið. Nöfnin hafa skemmt mörgum en þar er að finna fiska eins og Litla­krutt, Kjaft­s­varti kong­a­fiskur, fjaður­fagra havmús, Lítla nebbasild og Lítla Tussu­fiskur svo dæmi séu tekin.

„Elskan hvað er í matinn í kvöld? Krokodillu­prik­ka­fiski­bollur,“ skrifar Selma Lára.

Fjöl­miðla­maðurinn Helgi Seljan og fyrr­verandi blaða­maðurinn Stígur Helga­son taka einni þátt en flestum finnst nöfnin þó meira krútt­leg en fyndin.