Netverjar gera grín að blaðamannafundi Trumps í gær: „Nálægt fullorðinsbókabúðinni, á móti líkbrennslustöðinni“

Líkt og flestum ætti nú að vera kunnugt lýstu allir stærstu fjölmiðlarnir í Bandaríkjunum Biden sigri í gær, þegar fjórir dagar voru liðnir frá forsetakosningunum í landinu, en það var CNN sem var fyrsti miðillinn til að lýsa yfir sigri Bidens.

Sigurinn var tilkynntur um klukkan 16:30 að íslenskum tíma en skömmu áður hafði Trump boðað til blaðamannafundar á sama tíma. Í Twitter færslu um málið sagði forsetinn að „stór“ blaðamannafundur yrði haldinn við „Four Seasons“ en ekki var þó um að ræða hótelkeðjuna Four Seasons.

Fyrir utan dekkjaverkstæði

Rudy Giuliani, lögmaður Trumps og fyrrum borgarstjóri New York, mætti til Philadelphia, fyrir utan það sem virtist vera dekkjaverkstæði, ásamt öðrum úr starfsliði forsetans og komst að sigri Bidens í miðri ræðu.

Það sem vakti helst áhuga netverja var að Trump hefur líklegast ætlað að bóka Four Seasons hótelið en margir voru með þá kenningu um að Trump gæti ekki hætt við og því þurft að bóka annað svæði með sama nafni. Þannig hafi „Four Seasons Total Landscaping“ orðið fyrir valinu.

Jake Tapper, fréttamaður CNN, var einn af þeim sem tjáði sig um málið á Twitter en hann sagði: „Four Seasons Total Landscaping, nálægt fullorðinsbókabúðinni, á móti líkbrennslustöðinni. Ég er með þetta.“

Fleiri færslur frá netverjum má finna hér fyrir neðan.