Pítsa af matseðli í Megaviku, tilboðsviku Dominos, hefur hækkað enn meira og kostar nú 1790 krónur. Um er að ræða hundrað króna hækkun frá gamla verðinu sem var 1690 en pítsan kostaði lengi vel 1590 krónur. Margir muna þó eftir því þegar pítsan á Megaviku kostaði þúsund krónur.
Í samtalivið Vísi, segir Magnús Hafliðason, forstjóri Dominos, að hækkun á aðföngum síðastliðna mánuði skýri hækkunina.
Ekki er allir sáttir með hækkunina og hafa margir lagt orð í belg á twitter en miðað við efnahagsástandið ættu Íslendingar að búast við fleiri hækkunum á næstu vikum.
Í Danmörku færðu heimsins verstu pizzur á skítaverði 🤷🏼♀️
— Anna Björg (@annabk) June 21, 2022
sko ef þú þarft að fara uppí 1790 krónur fyrir eina pizzu þá er þetta ekki Megavika lengur. Alveg eins hægt að leggja þetta niður. 1790kr fyrir Dominos pizzu er ekki Mega neitt
— 💎 Donna 💎 (@naglalakk) June 21, 2022
Hádegis og Kvöldvaktartilboðið hjá þeim (miðstærð af matseðli + 0,5 gos) er á 1690kr. Þetta megaviku dæmi er búið að missa allt púll
— Morbaður (@fullurafgmjolk) June 21, 2022
Megavikan verður komin upp í 2000 kall og stök pylsa hjá Bæjarins upp í 1000 á innan við 5 árum. Mark my words.
— Þorvaldur Sigurbjörn Helgason 🇺🇦 (@dullurass) June 21, 2022