Hellubúum var brugðið í gærmorgun en búið var að skera alla regnbogafána bæjarins niður og segir Eggert Valur Guðmundsson, oddviti sveitarstjórnar Rangárþings ytra málið hundleiðinlegt.
Fréttablaðið greindi frá því í morgun að búið væri að skera fánalínurnar. Elín Jóhannsdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, sagði þar að verknaðurinn væri ekki hatursglæp heldur hreint og beint skemmdarverk. „Þetta tengist fánunum ekki sem slíkum.“
Ummæli Elínar hafa farið öfugt ofan í marga og hafa netverjar sakað lögregluna um að reyna hylma yfir það að í raun væri þetta hatursglæpur.
Þetta tengist akkúrat fánunum sem þarna blöktu og er því ekki einungis skemmdarverk, heldur líka hatursglæpur. Það er orðið tímabært að lögreglan taki á hatursglæpum í stað þess að afsaka þá eða gera lítið úr þeim!https://t.co/DM1vwKnhFk
— Gisli Olafsson (@gislio) August 9, 2022
Já ókei. Af því það var ekki skilinn eftir miði sem á stóð ÉG HATA HINSEGIN FÓLK eða eitthvað svoleiðis, þá beinist þetta alveg pottþétt bara gegn fánunum sem slíkum en ekki því sem þeir standa fyrir. pic.twitter.com/VWcOppuspL
— Halldór Auðar Svansson 🇮🇸 🤝 🇺🇦 (@tharfagreinir) August 9, 2022
“Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir verknaðinn ekki hatursglæp heldur hreint og beint skemmdarverk. „Það væri algjört vesen ef við þyrftum að rannsaka þetta sem hatursglæp og liti alveg skelfilega út fyrir bæjarfélagið þannig að við höfum ákveðið að gera það ekki”
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) August 9, 2022
“Elín Jóhannsdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir verknaðinn ekki hatursglæp heldur hreint og beint skemmdarverk. „Þetta tengist fánunum ekki sem slíkum.“ 😳 https://t.co/QdFO5ExD2G
— Felix Bergsson (@FelixBergsson) August 9, 2022
Meiru kallarnir þessir fánahatarar. Þeir hata bara hvaða fána sem er. Tilviljunin ein ræður því hvaða fána þeir skera niður. Þeir sjá ekki liti, bara fána. Er það ferkantað og blæs í vindi? Skera niður og í ruslið 🫡
— Bobby Breiðholt (@Breidholt) August 9, 2022
Þetta viðvarandi þekkingarleysi lögreglu á hatursorðræðu og hatursglæpum sem birtist hér og búið er að vara mjög lengi við er ekki lengur bara óþolandi og með öllu ólíðandi fyrir þolendur heldur er það hreinlega orðið okkur hættulegt! pic.twitter.com/4da2nX1fIv
— Sema Erla (@semaerla) August 9, 2022
Einhver skar niður fána, sem er ekkert venjulegur verknaður né algengt skemmdarverk, en það tengist fánum ekki neitt.
— Vilhelm Neto (@VilhelmNeto) August 9, 2022
Enda vel þekkt að fánar eru aldrei með hugmynd eða hugsjón bakvið þá, bara flottir litir í kassa. https://t.co/8IFgW9eMT1 pic.twitter.com/LgaBBvMfRw