Fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson ákvað á dögunum að fara til Úkraínu til að fjalla um stríðið. „Er þetta ekki þar sem mannkynssagan er að gerast?“ spurði Björn Ingi í samtali við Vísir.is
Netverjar á twitter draga hins vegar heilindi Björns í efa og tala um að hann sé hamfaratúristi.
Enginn: Best að drífa sig til Úkraínu, upplifa hörmungar annarra, taka það upp og selja hæstbjóðanda
— Haukur Heiðar (@haukurh) March 24, 2022
Björn Ingi: 🙃
Mánuði seinna. pic.twitter.com/cWaCa2Phbk
— Alexander Freyr 🇺🇦 (@alexander_freyr) March 24, 2022
Til umhugsunar:
— Helga (@svertla) March 25, 2022
Björn Ingi sem nú er hafður að háði og spotti var fyrir ekki svo margt löngu borgarfulltrúi - kjörin af hópi fólk í borginni... að vísu framsóknarmönnum en samt...
Það er eitthvað… “twisted” við það að Björn Ingi sé viljandi í Úkraínu. Það er eitthvað súrt bragð. Can’t put my finger on it… Mig langar að segja forréttindablinda á sósíópatísku leveli.
— Kötturinn (@AtliKisi) March 25, 2022
Björn Ingi segist vera í Úkraínu af því honum finnist það sem er að gerast „áhugavert” og talar um einn áfanga í rússnesku sem hann tók síðasta vetur í HÍ. Ég held ég hafi verið að komast að þolmörkum mínum í að ranghvolfa augunum yfir þessum egósentríska hamfaratúrisma.
— Bergþóra Jóns 🇺🇦 (@bergthorajons) March 24, 2022
“Sæll Zelensky, Björn Ingi á viljanum hér. Leyðu mér að útskýra þetta stríð fyrir þér áður en ég ber upp spurningu mína”
— Þórunn Ólafsdóttir (@Thorunnolafsd) March 24, 2022
Björni Ingi á vappi í Úkraínu er með því verra á internetinu í dag.
— Edda Falak (@eddafalak) March 25, 2022