Unglingurinn Jón Bjarni hefur farið mikinn á samfélagsmiðlinum Twitter síðustu mánuði og búið til ákveðið bil á milli eldri kynslóðarinnar sem þar er og þeirrar yngri. Hann er nokkurs konar sjálftitlaður forsvarsmaður ungu kynslóðarinnar á Twitter og stendur sína plikt gagnvart eldri kynslóðinni sem sótt hefur í sig veðrið á samfélagsmiðlinum vinsæla undanfarin misseri.
Segja má að Jón Bjarni hafi kastað handsprengju inn í friðarviðræður eldri og yngri kynslóðarinnar á Twitter. Og handsprengjan var í formi þess sem kalla mætti sameiningartákn þjóðarinnar: plokkfiskur!
Jón Bjarni fór ófögrum orðum um þennan ská-þjóðarrétt Íslendinga í eftirfarandi tísti: „Plokkfiskur er fokking ógeðslegt fyrirbæri, hvað er að ykkur? Hvernig finnst ykkur það í lagi að taka fisk og bara borða hann eins og leir?!? Og hvað þá GRATINERAÐAN? Karteflur og fiskur stappað saman, KÚGAST VIÐ TILHUGSUNA. Áferðin YUCK, lyktin AGH, bragðið ÓGEÐSLEGT,“ sagði Jón og sparaði ekki stóru orðin.
Óhætt er að segja færsla Jóns hafi vakið afar hörð viðbrögð hinnar íslensku Twitter fjölskyldu. Viðbrögð þeirra sem eldri eru voru þó öllu verri. Ármann nokkur segir: „Þú mátt hafa þínar röngu skoðanir í friði.“
Hún Ása Eyþórs kemur með góða ábendingu til Jóns: „Þú hefur ekki lifað fyrr en þú hefur smakkað plokkfiskinn hennar Nönnu Rögnvaldardóttur.“
Þá kveðst séra Sindri Geir Óskarsson, sóknarprestur í Glerárkirkju á Akureyri, hafa tilkynnt Jón Bjarna og aðganginn hans til Twitter. Ansi hörð viðbrögð!
Þá segir Hörður nokkur: „Setja bara nóg af svörtum pipar og þetta er orðin geitin í fiskréttum!“
Grínarinn Vilhelm Neto hótar einfaldlega Jóni Bjarna: „Er með nokkra vini með kylfur á leiðinni til þín.“
Siggeir Ævarsson, framkvæmdarstjóri Siðmenntar, slengir því hvað að útskúfunarmenningin hafi náð skottinu á Jóni: „Þar kom að því. Jón Bjarni er cancelled.“
Guðmundur Jörundsson, fatahönnuður JÖR, tekur undir með Siggeiri og segir: „Jæja þá er JB cancelled.“
Aþena nokkur býður Jóni Bjarna einfaldlega upp í slagsmál og þá segir Kolbrún nokkur: „Ef þú værir ekki lítill pjakkur þá myndi ég buffa þig.“
Þetta er svo sannarlega mál sem getur klofið þjóðina!