Netheimar loga eftir pistil Sigurðar: „Bættu mér á listann skræfa“

Óhætt er að segja að Facebook-síða Sigurðar G. Guðjónssonar hæstaréttarlögmanns logi eftir pistil sem hann birti í morgun.

Þar kallaði Sigurður eftir því að Persónuefnd myndi skoða hvort hópar eins og Bleiki fíllinn, Öfgar og Aktívistar gegn nauðgunarmenningu stundi ólögmæta vinnslu persónuupplýsinga. Nafngreindi Sigurður hátt í 60 konur sem hafa haft sig í frammi á samfélagsmiðlum í umræðunni um kynferðisofbeldi.

„Konur þessar veigra sér ekki við að hvetja til viðskiptabanns gegn einstaklingum og fyrirtækjum einstaklinga sem þær merkja sem ofbeldismenn og nauðgara,“ sagði Sigurður meðal annars í pistli sínum.

Nú þegar hafa hátt í 400 athugasemdar verið skrifaðar við pistil Sigurðar og hafa fjölmargar konur – og nokkrir karlar – stigið fram og hvatt Sigurð til að bæta sér á listann:

-„Bættu mér á listann skræfa.“
-„Endilega bættu mér á listann, heigull.“
-„Mátt endilega bæta mér á þennan lista.“
-„Pínu svekkt að vera ekki á þessum lista. Bættu mér endilega við! Svo mæli ég með Karlmennskunni, Bandamönnum og sjálfstyrkingarnámskeiði. Það hlýtur að vera agalegt að vera svona hræddur og lítill í sér.“
- „Takk fyrir að gera mig merkilega með því að setja nafnið mitt á listann, þvílíkur heiður á að vera nefnd í status hjá litlum hræddum kalli.“