Nem­endur grunaðir um að dreifa CO­VID-19 viljandi

Lög­reglan í Östersund í Sví­þjóð rann­sakar nú hvort hópur mennta­skóla­nem­enda hafi reynt að smitast af CO­VID-19-veirunni til að geta svo dreift henni enn frekar.

Sænski frétta­miðillinn SVT segir frá þessu, en í frétt miðilsins kemur fram að nem­endur séu grunaðir um að hafa reynt að hafa upp á CO­VID-19-smituðum ein­stak­lingum til að smitast sjálfir. Mark­miðið hafi svo verið að dreifa veirunni enn frekar. Er mark­miðið að ná fram ó­næmi fyrir næsta vor, að því er segir í frétt SVT.

Tekið er fram í fréttinni að að­eins sé um grun að ræða og engir nem­endur liggi bein­línis undir grun. Málið verði þó rann­sakað af lög­reglunni í þessari viku.

Moni­ca Sand­st­röm, rektor Jämt­lands Gymnasium í Östersund, segir við SVT að hún viti ekki til þess að ein­hver hafi vís­vitandi reynt að veikjast. Á hinn bóginn viti hún til þess að nem­endur séu þreyttir og ein­hverjir haft á orði að kannski væri best að næla sér í mót­efni. Það hafi þó trú­lega meira verið meint í gríni en fullri al­vöru.

Þá segir Moni­ca að nem­endur séu mjög með­vitaðir um hættuna sem af veirunni stafar og mikil­vægi þess að hefta út­breiðslu hennar eins og kostur er. Ef rétt reynist sé um mjög ó­á­byrga hegðun að ræða.

Mynd: