Nemendur Flensborgarskólans eru allt annað en sáttir með ráðningu Erlu Sigríðar Ragnarsdóttur sem skólameistara skólans í gær. Erla gegndi starfinu áður en mbl.is greinir frá því að nemendafélags skólans hafi sent menntamálaráðuneytinu bréf þar sem ráðningu er harðlega mótmælt.
Í bréfi nemenda sem nú hefur verið sent segir:
„Við nemendur Flensborgar (og kennarar) erum ótrúlega ósátt við að þið hafið ráðið gerendameðvirka manneskju sem skólameistara. Kennurum og nemendum líður almennt illa í Flensborg út af Erlu“
Segja nemendur að Erla hafi ekkert gert í ofbeldis- og eineltismálum í skólanum heldur einungis hugsað um ímynd skólans út á við.
Segja nemendur að þjálfarar í Gettu Betur og Morfís liða skólans neiti að starfa fyrir nemendafélagið á meðan Erla er skólastjóri þar sem styðji ekki við félagslíf nemenda.
„Hún er að rífa félagslífið niður sér til skemmtunar. Fólk þorir ekki að leita til hennar með neitt þar sem hún kennir þér um allt,“ segir í bréfinu.
Nemendur skora á ráðuneytið að gera eitthvað í málinu og segja að tila standi að safna saman frásögnum og undirskriftum þar sem ráðningu Erlu er mótmælt.
Samkvæmt Mbl.is ríkir ónægja með hvernig tekið hafi verið á hóp nemenda sem hafi ítrekað beitt samnemendur líkamleglegu ofbeldi.
Eins hafi Erla látið nemendur skólans, sem unnu við gerð leikmyndar fyrir sýningu leikfélagsins, sauma tjald sem átti að nota í fermingu hjá vinkonu Erlu. Þetta hafi verið gert í óþökk leikstjóra leikritsins og valdið því að leikmynd skemmdist.