Knattspyrnumenn landsins eru eðlilega orðnir spenntir fyrir sumrinu en Pepsi Max deildin íslenska hefst í næstu viku.
Eitthvað eiga menn þó erfitt með að hemja sig í æsingnum ef marka má heimildir Vísis sem greinir frá þvíað æfingaleikur KR og ÍA sem fór fram fyrr í dag hafi verið flautaður af vegna æsings í leikmönnum.
Staðan var 3-0 fyrir KR þegar ekki vær hægt að halda leik áfram þótt fimmtán mínútur voru eftir af leiktímanum.
Vísir hefur það eftir heimildarmönnum að einn leikmaður ÍA verið í „glæfralegar tæklingum“ allan leikinn, með sólann á undan sér. Slíkar tæklingar eru stranglega bannaðar í þessari íþrótt sem annars er talin fegurst allra íþrótta. En þegar aðeins korter var eftir af leiknum mun umræddur leikmaður hafa misst stjórn á sér og byrjað að sparka í mann og annan á vellinum.
Ef marka má tíst Kristjáns Óla Sigurðssonar, knattspyrnusérfræðings, kýldi Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður ÍA, leikmann KR og ‚straujaði vinstri bakvörðinn“. Svo á umræddur skagamaður að hafa sagt „suck my dick“ og gripið um tittlinginn á sér.
Samkvæmt frétt Vísis ákvað dómari leiksins, Þórður Már Gylfason, að flauta leikinn af þegar hér var komið sögu, „þar sem leikmönnum beggja liða var orðið mjög heitt í hamsi og illa gekk að róa mannskapinn niður. “
Ísak Snær missti hausinn gegn KR í æfingaleik.
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) April 22, 2021
Kýlir Arnþór Inga straujar vinstri bakvörðunni og segir svo við Kr-inga “suck my dick” og grípur um tittlinginn á sér. 👑
Ísak svarar hins vegar fyrir sig í viðtali við fotbolti.net
„Ég kýli aldrei leikmann KR, hann ætlaði að keyra inn í mig vegna þess hann var eitthvað pirraður yfir einhverju sem gerðist áður. Ég hoppa fyrir aftan hann og reyni að ýta honum frá mér, ef ég fór í andlitið á honum þá var það ekki ætlunin," segir Ísak við Fótbolta.net.
Hann segir enn fremur hann hafi alls ekki ‚straujað bakvörð‘ KR-inga.
„Hann ætlaði að hlaupa í gegn fyrir aftan mig og það eina sem ég geri er að stíga til hliðar og láta hann hlaupa á mig svo hann komist ekki fyrir aftan mig. Mér hefur verið sagt að gera það síðan ég var 15 ára og aldrei hefur verið dæmt brot á það þegar ég geri það. Ef að leikmaðurinn meiddist eitthvað við það þá biðst ég bara afsökunar á því."
Hann segir þetta hafa byrjað þannig að tveir KR-ingar hafi hlaupið að sér og byrjað að ýta á sig.
„Eina sem ég geri er að svara fyrir mig, ég leyfi ekki neinum að valta yfir mig,“ segir Ísak í viðtalinu. Hann segir viðkomandi hafa beðið sig afsökunar og þeir sæst eftir það.
Hann var ekki spurður um tittlinginn í viðtalinu, hvort hann hafi gripið um hann eða beðið menn að sjúga hann.
KR og ÍA mætast aftur í Pepsi Max deildinni þann 30. maí og hafa því rúman mánuð til að róa sig niður.