Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú atvik sem átti sér stað í vínbúð í miðborg Reykjavíkur síðdegis í gær. Þar réðst kona á öryggisvörð í versluninni, en öryggisvörðurinn hafði bent konunni á að grímunotkun væri skylda. Konan neitaði hins vegar að setja upp grímu.
Að sögn lögreglu réðst konan á öryggisvörðinn og hrinti honum, klóraði hann í andlitið og potaði í augað á honum. Að því búnu hljóp konan af vettvangi. Upptökur náðust af atvikinu og þekkti lögregla konuna af fyrri afskiptum. Málið er í rannsókn, að sögn lögreglu.