Næsta föstudag snýr Vikan með Gísla Marteini aftur í loftið á Ríkisútvarpi. Kappinn hefur greinilega mikinn húmor fyrir gagnrýninni á þáttinn ef marka má auglýsingu sem má sjá neðst í þessari frétt.
Þar eru ummæli virkra í athugasemdum sýnd á skjánum í hinni mestu hæðni. Eins og alþjóð veit hafa þættirnir stundum reynst umdeildir, en sumir vilja meðal annars meina að Gísli fái gjarnan sama fólkið í settið.
Gísli gerir gamansamt grín að þessu öllu saman í nýrri auglýsingu. Þar fara hann og Berglind Festival hreinlega á kostum eins og sjá má.