Íslenskan er lifandi og skemmtilegt tungumál og uppfullt af skemmtilegum orðum. Það eru líka til miður falleg orð í íslensku máli og ljóst að sitt sýnist hverjum í þeim efnum.
Fjölmargir hafa skrifað athugasemdir við skemmtilegan Twitter-þráð sagnfræðingsins Þorgils Jónssonar. Þorgils spurði þá eftirfarandi spurningar: „Hvað finnst þér vera ógeðslegasta íslenska orðið og hvað er í öðru sæti á eftir líkþorn?“
Hér að neðan má sjá nokkur af þeim svörum sem hafa borist:
Bólstrun og gaffall.
— Þórunn Jakobs (@torunnjakobs) April 27, 2021
Sviðholtsvör er a.m.k. ljótasta götunafnið
— Kolbeinn Karl 🧯 (@KolbeinnKarl) April 27, 2021
Svo finnst mér náriðill og mótþróaþrjóskuröskun frekar slæm
Sullaveiki.
— 𝙹𝚘𝚑𝚊𝚗𝚗 𝙸𝚗𝚐𝚒 𝙾𝚕𝚊𝚏𝚜𝚜𝚘𝚗 ♖ (@joe_in_DK) April 28, 2021
Þó svo reyndar það vissulega sé fegurð í ljótleikanum.
Svo er það hóruungi.
Þar er engin fegurð á ferð.
Graftarpollur, fistill, hreðka og slepja/slepjulegur
— María Rós (@mariagustavs) April 27, 2021
Júgursmyrsl
— H(alld)óra Stuðpjása (@halldorabirta) April 27, 2021
Slý og slýja eru ógeðsleg. Sömuleiðis safabóla.
— Katrín Arndísardóttir (@arndisardottir) April 27, 2021
Útskröpun er ógeðslegt orð - þá sérstaklega í samhengi við það sem það er.
— Diljá Ámundadóttir (@DiljaA) April 27, 2021
Legslímuflakk er hátt uppi
— ✨Una Geirdís Flosadóttir✨ (@UnaGeirdis) April 27, 2021
Brunndæla. Viðbjóður.
— Elmar Gísli Gíslason (@MelliTuzzz) April 27, 2021
Hrúðurkarl
— Halldór Auðar Svansson (@tharfagreinir) April 27, 2021
Görn
— Rosa Sturludottir (@rosasturlu) April 27, 2021
Þrymlabóla
— Quentin Quarantino (@boneless_beta) April 27, 2021
Njálgur
— Arnaldur Sigurðarson (@Arnaldtor) April 27, 2021
Bjúga
— Edda Kristjánsdóttir 😷 (@Eddak) April 27, 2021