Natan minnir Bjarni á um­mæli sín eftir bjórinn á Nor­di­ca: „Svo skál fyrir þér“

Natan Kol­beins­son, ritari Upp­reisnar - Ung­liða­hreyfingar Við­reisnar, skrifar um á­fengis­verð á Ís­landi í pistli á Vísir.is

„Í septem­ber 2019 var Bjarni Ben staddur á Nor­di­ca að panta sér bjór. Þessi bjór varð til þess að frétt birtist í Frétta­blaðinu þar sem Bjarni tjáir sig um það að honum finnst á­fengis­verð á Ís­landi of hátt. Hann segir að ferða­þjónustan þurfi að vera sam­keppnis­hæf þegar kemur að verð­lagningu,“ skrifar Natan.

„Það er hár­rétt hjá Bjarna að á­fengi sé of dýrt á Ís­landi. Ef við berum okkar saman við EES-ríkin þá er Finn­land eina ríkið þar sem á­fengis­verð er hærra. Á­fengis­verðið á Ís­landi,sam­kvæmt Eurostat frá 2021, er meira en helmingi dýrara en meðal­verðið í ESB ríkjunum. Á­fengis­verð ræðst að mestu leyti að sköttum og gjöldum hins opin­bera. Því hefur Bjarni verið í full­kominni stöðu til að bregðast við þessu háa á­fengis­verði, sem hann er svo ó­sáttur við, enda hefur hann verið höfundur hvers einasta fjár­laga­frum­varps sem sam­þykkt hefur verið á Al­þingi síðan 2013. Bjarni hefur því haft nægan tíma til að leið­rétta þetta háa á­fengis­verð sem hann er svo ó­sáttur við og gert verðin sam­keppnis­hæf fyrir ferða­þjónustuna,“ heldur Natan á­fram.

Hann minnir fókl á að Bjarni varð fjár­mála­ráð­herra árið 2013 en þá var á­fengis­gjaldið 95,53.kr á hvern senti­lítra af vín­anda.

„Núna, 9 árum síðar, mun það eftir ára­mót hækka í 142,15 kr. Það er hækkun uppá 48,8% frá því Bjarni varð fjár­mála­ráð­herra. Gjörðir Bjarna í þessum málum fara ekki alveg saman við þann pirring sem hann fann fyrir árið 2019 á Nor­di­ca, þegar hann keypti dýra bjórinn sem rataði í Frétta­blaðið. Vissu­lega eru mörg rök notuð til að verja þetta háa á­fengis­verð sem við búum við og eru það þá fyrst og fremst lýð­heilsu­sjónar­mið sem þarna ráða för. Þessi lýð­heilsu­sjónar­mið eiga samt al­mennt ekki upp á pall­borðið hjá Sjálf­stæðis­flokknum miða við lands­fundar­á­lyktanir þeirra og því furðu­legt ef Sjálf­stæðis­flokkurinn lætur það stjórna á­kvörðunar­töku sinni.“

„Gæti það verið að Bjarna finnist auð­velt að hækka á­fengis­gjaldið þar sem alltaf er hægt að bera fyrir sig lýð­heilsu­sjónar­mið og því ekki erfitt fyrir Bjarna að láta gagn­rýni sem vind um eyru þjóta. Síðustu ár hafa verið veitinga­húsum og börum erfið. Lokanir vegna Co­vid hafa sett strik í reikninginn hjá þessum fyrir­tækjum. Það væri því í anda stefnu Sjálf­stæðis­flokksins sem vill vera flokkur fyrir­tækja­reksturs að sleppa því að hækka gjaldið á meðan fyrir­tækin eru enn að ná sér eftir tvö erfið ár. Bjarni sér það ekki sem for­gangs­mál og því lifum við með að sjá en eina hækkunina á á­fengis­gjaldinu núna eftir ára­mót. Svo Bjarni skál fyrir þér og þínu háa á­fengis­gjaldi. Ára­móta­óskin mín er að einn daginn látir þú gjörðir fylgja orðum en kvartar ekki bara yfir hlutum sem að þú sjálfur ert í kjör­að­stæðum til að breyta,“ skrifar Natan að lokum.