Nanna ekki eytt krónu í mánuð: Nefnir það fyrsta sem hún ætlar að kaupa

Nanna Rögn­valdar­dóttir, mat­reiðslu­bókar­höfundur, hefur ekki farið úr húsi frá 12. mars og ekki er út­lit fyrir að það muni breytast á næstu dögum. Nanna er í við­tali í sunnu­dags­blaði Morgun­blaðsins þar sem hún segist vera í sjálf­skipaðri ein­angrun vegna CO­VID-19 far­aldursins.

„Ég er með undir­liggjandi kvilla og orðin það roskin að ég er í á­hættu­hópi,“ segir Nanna í við­talinu. Hún segir að myndir af gjör­gæslu­deildum á Ítalíu hafi ráðið úr­slitum um þessa á­kvörðun hennar. Hún hafi ekki viljað hafa það á sam­viskunni að taka pláss frá öðrum ef mögu­legt væri að komast hjá því.

Nanna hefur ekki eytt krónu í mat undan­farnar fimm vikur og þess í stað þess hefur hún nýtt það sem er til í skápunum. Hún segir að þetta hafi gengið vel og hún hafi fundið ó­trú­legustu hluti í skápunum sem hún var búin að gleyma að hún ætti.

Nanna er þekkt fyrir mat­reiðslu­bækur sínar og hug­mynda­flugið er svo sannar­lega til staðar þegar kemur að upp­skriftum. Í við­talinu segir Nanna að hún sjái fyrir sér að vera í ein­angrun til 4. maí næst­komandi en hún veit ekki hvort hún haldi það út að eyða ekki krónu í mat.

Nokkuð hefur gengið á birgðir að undan­förnu; síðasta eggið kláraðist á dögunum og þá er hún uppi­skroppa með mjólk og græn­meti. Hún á enn dá­lítið kaffi sem hún fann í frystinum og meðan svo er ætti hún að vera í góðum málum.

Hún segist vita upp á hár hvað hún ætlar að kaupa þegar hún loksins á­kveður að kaupa í matinn.

„Það fyrsta sem ég ætla að kaupa er nýr fiskur. Ég borða yfir­leitt mikið af fiski og kaupi hann alltaf nýjan,“ segir hún við Morgun­blaðið.