Nánasta fólk Einars lýsir honum: „Hann er með mikið og ó­þolandi keppnis­skap“

Í frétt sem birtist í Frétta­blaðinu í dag er rætt við ein­stak­linga sem nánir eru Einari Þor­steins­syni, odd­vita Fram­sóknar­flokksins í Reykja­vík og fram­tíðar borgar­stjóra. Rætt er við Hall­dór Þor­steins­son, yngri bróðir Einars, Sunnu Val­gerðar­dóttur, fyrrum sam­starfs­konu á RÚV og Skapta Örn Ólafs­son, vin frá há­skóla­árunum.

„Hann hefur alltaf verið mér mikil fyrir­mynd og ég litið upp til hans,“ segir Hall­dór í sam­tali við Frétta­blaðið.

Skapti Örn Ólafs­son segir Einar alltaf hafa verið for­ystu­mann og að hann marki alls staðar spor þar sem hann er. Þeir kynntust í stjórn­mála­fræðinni upp úr alda­mótum og eru vinir enn í dag.

Sunna Val­gerðar­dóttir segir einar vera þrjóskan. „Ég held ég geti sagt að hann sé fylginn sér, er það ekki fal­legt orða­lag yfir að vera þrjóskur?“ segir Sunna. Hún segir hann elska að taka þátt í keppnum, „hvort sem það er spurninga­keppni, búninga­keppni eða jóla­skreytinga­keppni og hann er með mikið og ó­þolandi keppnis­skap,“ segir Sunna.

„Hann er ofsa­lega tap­s­ár og er virki­lega pirrandi sem slíkur en er enn verri þegar hann vinnur. Sem er slæmt því hann vinnur eigin­lega alltaf,“ segir Sunna. Skapti er á sama máli og Sunna og segir, „Við höfum att kappi í ýmsu og spiluðum golf lengi og hann er von­laus kylfingur. Við spiluðum líka billi­ard og það er alltaf keppni.“