Nágranni við Grundarstíg opnar sig: „Þetta er alveg hræðilegt“

Kona sem býr fyrir ofan íbúðina við Grundarstíg þar sem maður lést í morgun og tveir voru handteknir hefur tjáð sig um málið.

DVhefur eftir konunni að það litla sem hún hafi orðið var við íbúna hafi verið gott.

„Ég varð ekki vör við neitt og það býr þarna eitthvert ungt fólk, held ég, sem ég þekki hreinlega ekki neitt. Hef bara heilsað þeim. Þetta er alveg hræðilegt.“ segir hún.

„Ég gekk þarna framhjá í gærkvöld og þá stóð þarna ung kona við dyrnar, Spítalastígsmegin, ég bauð bara gott kvöld og hún mér og ekkert meira um það. Ég hef alls ekki neitt orðið vör við ónæði. Það er reyndar ein hæð á milli mín og jarðhæðarinnar, en ég hef aldrei haft nokkurn hlut af þessu fólki að segja,“ segir konan.

DV tekur fram að hún lýsi yfir mikilli hryggð yfir atburðinum. Hún telur þó illskárra ef það reynist rétt að andlát mannsins hafi ekki borið að með saknæmum hætti.

„Það er skárra ef það er þannig.“

Hægt er að lesa nánar um málið á vef DV.