Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp óvenjulegan dóm í gær þegar kona var dæmd til að flytja úr íbúð sinni innan mánaðar og selja hana innan þriggja mánaða.
Konan sem um ræðir keypti íbúð í fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu í september 2019 og flutti inn í hana stuttu síðar. Síðan þá hefur lögregla ítrekað verið kölluð að húsinu, fyrst og fremst vegna hávaða af heimili konunnar, ýmist vegna samkvæma eða hunda sem konan hélt í íbúð sinni.
Húsfélag hússins hafði fengið nóg af ástandinu og leitaði til Húseigendafélagsins sem sendi konunni aðvörun í nóvember 2019. Bréfið var aftur sent í janúar á þessu ári en í bréfinu kom meðal annars fram að nágrannar hefðu orðið fyrir miklu ónæði og ama allt frá því að konan flutti í húsið. Húsgögn væru sífellt færð til og miklir dynkir kæmu frá íbúðinni.
Þá var talað um ítrekað partýhald með tilheyrandi hávaða og ónæði. Stöðugur umgangur væri af fólki í annarlegu ástandi í sameign hússins sem hafi meðal annars unnið skemmdir á sameign, ásamt því að persónulegir munir annarra íbúa hafi horfið. Í bréfinu var einnig talað um að fólk tæki í hurðarhúna og hafi reynt að komast inn í aðrar íbúðir stigagangsins. Þá væri konan með tvo hunda sem ekki væri leyfi fyrir, þeir gengju lausir um sameignina og væru hafðir lengi úti á svölum þar sem þeir gelti og góli á öllum tímum sólarhrings.
Konan kannaðist við hluta þeirra umkvartana sem nágrannar hennar lýstu, en tók fram að hún hefði þurft að fara í aðgerð á baki vegna umferðarslyss sumarið 2019 og aðgerð á höfði þar sem æxli var fjarlægt. Hún hefði átt erfitt með að skynja umhverfi sitt og í mestu vandræðum með að fóta sig almennt í lífinu. Þá hafi hún verið í sambúð með ofbeldismanni sem nú væri fluttur úr íbúðinni. Þá hefði dóttir hennar verið í mikilli óreglu og fíkniefnaneyslu, en hún hafi fengið að búa hjá móður sinni gegn því að hún yrði allsgáð. Það hafi ekki gengið eftir og dóttirin ítrekað haldið partý ásamt fyrrverandi sambýlismanni móður sinnar.
Fyrir dómi kom fram að konan hefði fengið tækifæri til að bæta ráð sitt og þá væri ósannað að vanheilsa hennar firri hana ábyrgð á því ónæði sem nágrannar hennar höfðu orðið fyrir. Þá lýstu vitni því að konan hefði sjálf verið þátttakandi í þessum samkvæmum sem haldin voru á heimili hennar og spurt hvort aldrei mætti neitt.
Konan var því dæmd til að flytja úr íbúðinni, ásamt öllu því sem henni tilheyrir, innan mánaðar frá því að dómur féll og selja íbúðina innan þriggja mánaða. Þá var henni gert að greiða húsfélagi hússins 1,1 milljón króna í málskostnað.