Björgunarsveitin Strákar getur illa notað aðstöðu sína þessa stundina þar sem búið er að girða af skemmu sveitarinnar með bifreiðum og vinnuvélum. Greint er frá málinu á vef Trölla á Siglufirði og er meðfylgjandi mynd birt með góðfúslegu leyfi Trölla.
Í fréttinni kemur fram að nágranni sveitarinnar, Valgeir Sigurðsson, hafi girt lóðina af. Hann sé í fullum rétti til þess þar sem hann sé eigandi lóðarinnar þar sem aðkeyrsla sveitarinnar að tækjaskemmunni er. Segir hann að enginn hafi spurt hann um leyfi um það hvort leyfilegt sé að aka yfir lóðina. Nú sé kominn tíma til að samið sé við hann og hann fái greitt fyrir aðstöðuna.
Þá hafi hann orðið fyrir ónæði vegna smíði við fjarskiptamastur á lóð sveitarinnar.
Í frétt Trölla kemur fram að ekki sé hægt að koma búnaði sveitarinnar út ef á þarf að halda en fyrr í dag var hafist handa við að saga niður vegg til að opna leið út fyrir tæki sveitarinnar. Ingvar Erlingsson hjá Strákum segir að um erfitt mál sé að ræða og það sé mönnum hvatning til að íhuga flutning á starfseminni.
Frétt Trölla og fleiri myndir.