Maðurinn sem var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði á laugardagskvöld hét Armando Beqiri. Fréttavefur DV greinir frá þessu.
Armando var frá Albaníu en hafði verið búsettur á Íslandi í mörg ár. Hann lætur eftir sig ólétta sambýliskonu og ungt barn. Armando hefði fagnað 31 árs afmæli sínu í dag hefði hann lifað, en hann var fæddur 16. febrúar árið 1988.
Í frétt DV kemur fram að vinir og samstarfsmenn Armando beri honum vel söguna. Segja þeir að hann hafi verið harðduglegur, heiðarlegur, vingjarnlegur og traustur.
Einn einstaklingur situr í gæsluvarðhaldi vegna gruns um morðið en auk þess handtók lögregla þrjá einstaklinga í viðamiklum aðgerðum í nótt í tengslum við málið.