Nafn mannsins sem lést í slysinu í Ása­hreppi

Maður­inn sem lést í vinnu­­slysi í Ása­hreppi í Rang­ár­valla­­sýslu á föstu­­dag hét Guð­jón Björns­­son. Þetta kemur fram á vef mbl.is

Maðurinn var fæddur 1983 og lætur eftir sig eigin­konu og þrjú börn. Í frétt mbl.is segir að Guð­jón var bóndi og rak kúa­bú á­samt konu sinni á Syðri-Hömr­um 3 í Ása­hreppi.

„Það rík­ir mik­il sorg í sam­­­fé­lag­inu en þarna eru þrjú lít­il börn sem koma nærri,“ seg­ir séra Hall­­­dóra Þor­varðar­dótt­ir, pró­fast­ur í Fells­múla­presta­kalli í Suður­­­pró­fasts­­­dæmi
í sam­tali við mbl.is. Bæna­­stund fór fram í gær og segir Hall­­dóra að það hafi verið vel mætt.

„Það var full kirkja. Til­­­efnið var að veita sorg­inni og þess­um lam­andi frétt­um far­veg og sýna sam­hygð og sam­­­stöðu við þess­ar skelfi­­­legu að­­stæður,“ segir Hall­­dóra