Maðurinn sem lést í umferðarslysi við Heydalsveg þann 4. október síðastliðinn hét Halldór Erlendsson. Halldór, sem var á sextugsaldri, var til heimilis á Álftanesi og lætur hann eftir sig eiginkonu og tvö uppkomin börn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi.
Í tilkynningu sem lögregla sendi frá sér eftir slysið kom fram að bifreiðin hafi hafnað ofan í á. Kona sem var í bílnum slapp án alvarlegra meiðsla en var orðin köld þegar að var komið.
Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi við Heydalsveg þann 4. október var Halldór Erlendsson til heimilis á Álftanesi. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvö uppkomin börn.
Posted by Lögreglan Vesturlandi on Þriðjudagur, 13. október 2020