Nafn mannsins sem lést af slys­förum á laugar­dag

Maðurinn sem lést í um­ferðar­slysi á Suður­lands­vegi við Stigá þann 15. ágúst síðast­liðinn hét Stefán Haf­stein Gunnars­son. Stefán var til heimilis að Hamra­borg 32 í Kópa­vogi.

Hann var fæddur 9. mars 1973. Stefán lætur eftir sig eigin­konu og tvo upp­komna syni. Frá þessu greinir lögreglan á Suðurlandi á Facebook-síðu sinni.