Maðurinn sem lést af slysförum síðastliðinn sunnudag í botni Patreksfjarðar hét Sveinn Eyjólfur Tryggvason. Sveinn var fæddur árið 1972 og var til heimilis að Sigtúni á Patreksfirði.
Sveinn Eyjólfur lætur eftir sig eiginkonu og sjö börn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Vestfjörðum.
„Fjölskyldu og aðstandendum öllum er vottuð dýpsta samúð. Rannsókn á tildrögum slyssins er til rannsóknar hjá lögreglunni á Vestfjörðum og miðar vel,“ segir í tilkynningu lögreglu.