Maðurinn sem grunaður er um að hafa skotið á bíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra fyrir rúmri viku heitir Hallur Gunnar Erlingsson. Hallur er fyrrverandi lögreglumaður og var hann dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn þremur ungum stúlkum árið 2003.
Fréttablaðið.is greindi frá þessu í gærkvöldi og vísaði í heimildir sínar. Í fréttinni kemur fram að hann sé einnig grunaður um að hafa skotið á hús Samfylkingarinnar.
Hallur lauk afplánun á dómi sem hann hlaut árið 2005 en fékk uppreist æru árið 2010. Fórnarlömb hans stigu fram árið 2017 þegar umræða um einstaklinga sem hlotið höfðu uppreist æru komst í hámæli.
„Ég las fyrirsögnina, las hana aftur og aftur, að fyrrverandi lögreglumaður hefði fengið uppreist æru. Ég trúði þessu varla og þurfti að lesa fréttina örugglega þrisvar áður en ég trúði þessu og brotnaði bara niður. Ég var í vinnunni og ég gat bara ekki hugsað,“ sagði kona sem Hallur var dæmdur fyrir að brjóta gegn í samtali við RÚV árið 2017.
Hallur situr nú í gæsluvarðhaldi sem rennur að óbreyttu út á föstudag.