Nafn mannsins sem fannst látinn í Vestmannaeyjahöfn

Maður fannst látinn í höfninni í Vestmannaeyjum á öðrum tímanum á miðvikudaginn. Ekki leikur grunur á að lát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og tengdafaðir mannsins, segir mikinn harm kveðinn að fjölskyldu sinni. Maðurinn hét Ingimar Ágúst Guðmarsson. Hann skilur eftir sig eiginkonu og tvo syni, 16 ára og 4 ára.