Maðurinn sem fannst látinn í Breiðholti, neðan Erluhóla, 21. ágúst síðastliðinn hét Örn Ingólfsson. Örn var 83 ára gamall en að sögn lögreglu er ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.
„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þakkar kennslanefnd ríkislögreglustjóra fyrir veitta aðstoð við rannsókn málsins,“ segir í tilkynningu lögreglu.