Íslendingurinn sem lést í Rússlandi í síðustu viku eftir að hafa greinst með kórónuveiruna hét Áki Sigurðsson. Greint er frá nafni hans á vef Bæjarins besta á Ísafirði, en Áki var Vestfirðingur.
Fjölmiðlar hér á landi greindu frá því í síðustu viku að Íslendingur hefði látist í borginni Petropavlovsk á Kamsjatka-skaga. Greindi Vísir frá því að maðurinn hefði fengið látist af völdum lungnabólgu vegna COVID-19.
Í frétt Bæjarins besta kemur fram að Áki hafi verið rafvirki og hann hafi verið í vinnuferð í Rússlandi þegar hann greindist með veiruna.
Hann var fæddur í Súðavík þann 1. maí 1960 og ólst hann þar upp. Hann var síðast búsettur í Bolungarvík. Í frétt BB.is kemur fram að Áki láti eftir sig tvö uppkomin börn og þrjú barnabörn.