Íslendingurinn sem fórst í eldsvoða á Tenerife á sunnudaginn er sprenging varð í bílageymslu við heimili hans hét Haraldur Logi Hrafnkelsson, fæddur 23. ágúst 1972. Mbl.is greindi fyrst frá.
Haraldur lætur eftir sig eiginkonu, Drífu Björk Linnet Kristjánsdóttur.
Haraldur og Drífa hafa verið búsett á Tenerife ásamt fjórum börnum sínum stóran hluta úr árinu síðustu misseri. Þau opnuðu nýverið kokteilbar á eyjunni. Þá hafa þau einnig rekið heildsöluna Reykjavík Warehouse á Íslandi.