„Ætli Landlæknir hafi eitthvað um þetta framferði að segja? Að læknir með íslenskt lækningaleyfi hegði sér með þessum hætti - er hægt að láta það óátalið?“
Þessum spurningum varpaði Ragnar Freyr Ingvarsson læknir fram á Facebook-síðu sinni í morgun. Tilefnið var mál Elísabetar Guðmundsdóttur lýtaskurðlæknis sem neitaði bæði að fara í sýnatöku og í sóttkví við komuna til landsins á föstudag.
Elísabet hefur talað gegn hörðum sóttvarnaráðstöfunum og fór hún til að mynda á mótmæli sem haldin voru í miðborg Reykjavíkur í gær, daginn eftir að hún kom til landsins.
Fréttavefur DV greinir frá því að nafn Elísabetar sé ekki að finna í skrá yfir starfsleyfi sem Landlæknir gefur út. Í skránni eru upplýsingar um alla heilbrigðisstarfsmenn sem hafa gilt starfsleyfi frá landlækni og upplýsingar um gild sérfræðileyfi.
Elísabet hefur meðal annars starfað sem læknir í Svíþjóð og hóf hún störf á Landspítalanum þann 1. apríl síðastliðinn á brjóstamiðstöð. Henni var sagt upp störfum í lok októbermánaðar og sagði hún í kjölfarið í samtali við fréttavef DV að uppsögnin hefði að líkindum komið til vegna aktívisma gegn COVID-19.
Á vef Landlæknis segir að starfsleyfaskráin sé uppfærð daglega.
Ekki náðist í Elísabetu við vinnslu þessarar fréttar.