Næsta ættarmót gæti orðið áhugavert: „Fíflið hann frændi minn“

Jóhann Páll Jóhannsson, fyrrverandi blaðamaður á DV og Stundinni, getur látið sig hlakka til næsta ættarmóts.

Jóhann Páll er nefnilega tengdur Örnu Bryndísi McClure, aðallögfræðingi Samherja, fjölskylduböndum. Arna virðist ekki hafa mikið álit á frænda sínum ef marka má umfjöllun Kjarnans í dag en nafn Jóhanns Páls kemur upp samtölum skærðuliðadeildarinnar svokölluðu sem Kjarninn hefur undir höndum.

Í gögnunum er meðal annars rætt um grein sem Jóhann Páll skrifaði. Í greininni var því haldið fram að stjórnmálamenn hefðu meðvitað gelt eftirlitsstofnanir með útgerðinni og búið til ofurstétt sem eignar sér fiskinn í sjónum.

Arna er sögð hafa sent þau skilaboð til skæruliðadeildarinnar að það væri lítið mál að „svara kjaftæðinu í frænda mínum“. Langamma Örnu og amma Jóhanns Páls voru systur. Hún sendir svo fyrirspurn til Þorbjarnar Þórðarsonar og spyr hvort hann geti ekki hent upp „svörum á fíflað hann frænda minn?“

Jóhann Páll, sem nú er í framboði fyrir Samfylkinguna, virðist hafa haft nokkuð gaman af þessari uppljóstrun Kjarnans. Hann birtir skjáskot af umfjölluninni á Twitter og segir einfaldlega: „Hlakka til næsta ættarmóts“