Næst mesti fjöldi smita og styttist í að kerfi bresti

Það var þungt hljóð í fundar­­­gestum á upp­­­­­lýsinga­fundi al­manna­varna í dag vegna stöðu Co­vid-far­aldursins, einkum vegna á­lagsins á heil­brigðis­­­kerfið. Víðir Reynis­­­son, yfir­­­lög­­­reglu­­­þjónn al­manna­varna, var ó­­­­­myrkur í máli.

Í gær greindust í það minnsta 151 Co­vid-smit innan­lands, næst mesti fjöldi frá upp­hafi far­aldursins. Þann 30. júlí voru greind 154 smit.

„Það þyngist heldur staðan, hraður vöxtur þessarar bylgju og dreifing smita um allt land er ný reynsla fyrir okkur, sem betur fer eru bólu­­­setningar að verja okkur að hluta þannig að hlut­­­fall þeirra sem veikjast al­var­­­lega er lægra en áður, það er hins vegar til lítils að horfa til prósentu­hlut­­­falls þegar við erum að tala um líf og heilsu ein­stak­linga, með auknum fjölda smita fjölgar þeim ein­stak­lingum sem verða al­var­­­lega veikir og þurfa að­­­stoð með til­­­heyrandi á­lagi, við færumst nær þol­­­mörkum ýmissa kerfa,“ sagði Víðir.

Kamilla S. Jósefs­dóttir, stað­­gengill sótt­varna­­læknis, sagði á fundinum að ljóst væri ef að fram færi sem horfir gætu kerfi sem þjóðin reiðir sig á bresta.

Nú eru 18 inni­­­liggjandi á Land­­­spítala með Co­vid-19, þar af þrír á gjör­­­gæslu en tveir þeirra voru lagðir inn í gær. Enginn er þó í öndunar­­­vél. Páll Matthías­­­son, for­­­stjóri Land­­­spítalans, sagði á­standið þar erfitt.
„Við glímum við erfið­­­leika við að manna gjör­­­gæslu­­­rýmin hjá okkur og við erum búin að fylla A7, smit­­­sjúk­­­dóma­­­deildina, af fólki með Co­vid-19 og þurfum næst að opna A6, lungna­­­deildina, það er tor­velt því það þarf að út­­­skrifa og færa til annað fólk, það reynist á­skorun,“ sagði Páll. „Við megum gera ráð fyrir auknu á­lagi en hversu miklu er ekki alveg ljóst.“

„Það má lítið gefa á til þess að það fari að flæða yfir,“ sagði hann enn fremur og starfs­­fólk spítalans væri gríðar­­lega þreytt enda mikið á því mætt í far­aldrinum. Gripið hafi verið til ýmissa að­­gerða til að mæta á­laginu sem far­aldrinum fylgi en gera þyrfti meira til að mæta því á­lagi. Efla þyrfti heil­brigðis­­kerfið svo það sé ekki „alltaf einni far­aldurs­bylgju eða rútu­­slysi frá því að fara á hliðina.“