Nærri 25 þúsund skora á stjórnvöld að leiðrétta breytingu á aldursmörkum í krabbameinsskoðun

Tæplega 25 þúsund ein­staklingar hafa skrifað undir á­skorun til stjórn­valda um að leið­rétta breytingu á aldurs­mörkum kvenna sem boðaðar eru í brjósta­krabba­meins­skimun. Um ára­mótin hækkuðu aldurs­mörkin úr 40 ára í 50 ára.

Undirskriftasöfnunin hófst í gær og hefur fengið byr undir báða vængi. Forsprakki undirskriftasöfnunarinnar, Jónína Sævarsdóttir, sagði í samtali við Fréttablaðið að breytingar á aldursmörkum ógnuðu lífi fjölda kvenna.

„Ég tel að þetta sparnaðar­ráð verði hár fórnar­kostnaður fyrir þær konur sem munu greinast of seint vegna nýju reglnanna.“

Þvert á móti ráðleggingum

Ákvörðun um breyttan skimunaraldur var þar að auki tekin án tillits til niðurstöðu sérstaks fagráðs um brjóstakrabbamein.

Fagráðið taldi að fara ætti að ráðleggingum Evrópusambandsins og hefja skimun við 45 ára aldur og fram til 74 ára. Skimunarráð fyrir krabbameinum á Íslandi taldi hins vegar ekki næg rök fyrir því.

Frá 2015-2019 greindust ár­lega að meðal­tali 31 brjósta­krabba­mein hjá konum á aldrinum 40-49 ára. Um 50 konur deyja vegna brjósta­krabba­meins á hverju ári á Ís­landi. 

Hægt er skrifa undir listann hér.