Nadía Sif Líndal Gunnarsdóttir vill ekki láta bendla sig við viðtal DailyMail sem frænka hennar Lára Clausen fór í á dögunum. Þetta má meðal annars sjá í ummælakerfum Mbl.is þar sem Nadía þakkar netverja fyrir að benda á að hún hafi ekki farið í viðtal hjá breska miðlinum.
Konurnar tvær, þær Nadía og Lára, hafa orðið fyrir mikilli drusluskömmun á kommentakerfum á netinu eftir að málið komst í fréttirnar. Nadía og Lára segjast hvorugar hafa vitað af því að mennirnir hafi verið í sóttkví.
Viðtalið við Láru hefur vakið heimsathygli. Þar lýsir hún meðal annars síðustu samskiptum sínum við fótboltamanninn Phil Foden, sem furðar sig á því að hún hafi opinberað samskipti sín við leikmanninn.

Í ummælakerfum Mbl.is við frétt um viðtalið við Láru fá bæði hún og Nadía nokkra útreið meðal netverja. Spyrja nokkrir hvort ekki hefði verið skynsamlegra að halda sig til hlés. Ber þar hæst ein ummæli sem um hundrað manns bregðast við.
„Já það er kvartað yfir að þær séu teknar af lífi í kommenntakerfum og jájá það hafa verið mörg grimm skrif EN KOMMON er það þá ekki heilbrigð skynsemi að halda sér til hlés. Nei nei nú er bara rætt við erlenda blaðamenn. HVUR FJANDINN ER AÐ HJÁ ÞESSUM UNGU STÚLKUM. Auðvitað hefur þetta verið spennandi ævintýri EN er ekki bara hægt að hafa það fyrir sig.
Virðast vera athyglissjúkar EN höndla ekki að fólk tjái sig ef það er neikvætt og finnist þetta of mikið. Vonandi fara þessi leiðindi að ganga yfir og stelpurnar HÆTTI að halda umræðunni gangandi.“
Þá bendir annar netverji á að það hafi einungis verið önnur kvennanna sem hafi farið í viðtal við DailyMail. „Þetta er bara önnur þeirra. Ekki bendla báðar við þetta viðtal.“ Þakkar Nadía sjálf fyrir umrædd ummæli.
Þá deilir Bryndís Líndal, móðir Nadíu, frétt Vísis af viðtalinu á Facebook. Bryndís sagði í viðtali við Fréttablaðið á dögunum að málið hafi tekið mjög á dóttur sína. Í deilingu sinni segist Bryndís vilja vekja á því athygli að það sé einungis Lára sem sé í einkaviðtali við DailyMail.
„Ég vil vekja athygli á því að hér er bara Lára í einkaviðtali við Daily Mail að segja sína sögu. Nadía Sif Líndal er ekki í þessu einkaviðtali.“
Ég vil vekja athygli á því að hér er bara Lára í einkaviðtali við Daily Mail að segja sína sögu. Nadía Sif Líndal er ekki í þessu einkaviðtali 🙏
Posted by Bryndís Líndal on Friday, 11 September 2020