Nadía og Lára fá stuðning úr öllum áttum: „Rétt upp hönd þið sem aldrei hafið gert neitt heimskulegt“

Konurnar sem heimsóttu knattspyrnulandsliðsmennina Phil Foden og Mason Greenwood hafa fengið á sig mikinn óhróður í athugasemdakerfum fjölmiðla og á samfélagsmiðlum. Þeim berast nú stuðningur úr öllum áttum þar sem fólk er hvatt til að setja sig í þeirra spor og dæma ekki en öll eru þau um tvítugt.

Bæði Foden og Greenwood hafa greitt íslenska ríkinu 250 þúsund króna sekt vegna brota á sóttkvíarreglum, þá hafa þeir verið sendir heim í stað þess að halda áfram með enska landsliðinu til Kaupmannahafnar.

Þær Lára Clausen og Nadía Sif Líndal hafa báðar stigið fram og rætt heimsóknina. Í myndbandi á Instagram segir Lára að hún hefði aldrei heimsótt þá ef sóttkví þeirra hefði borið á góma. „Ef við hefðum vitað betur, þá hefðum við aldrei farið vitandi að þeir væri í sóttkví,“ sagði Lára.

Þá hefur Nadía Sif birt skjáskot af sumum athugasemdunum.

Sparkspekingurinn Hjörvar Hafliðason var mögulega sá fyrsti til að koma þeim til varnar, það gerði hann á Twitter.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, kemur þeim til varnar á Facebook. „Tvær ungar konur hitta tvo fótboltamenn á sama aldri. Þetta var vissulega heimskulegt, vegna reglna um sóttvarnir, en getum við verið sammála um það að það sé algjör óþarfi að fara hamförum á samfélagsmiðlum með slíkum hroða að það mun augljóslega valda þessum ungu konum nokkrum skaða?,“ segir Helga Vala. „Rétt upp hönd þið sem aldrei hafið gert neitt heimskulegt. Rétt upp hönd þið sem þakkið fyrir það á hverjum degi að samfélagsmiðlar voru ekki til þegar þið voruð á aldrinum 15-25. Eigum við kannski að gefa þeim smá séns?“

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, segir að hann finni til með bæði knattspyrnumönnunum og íslensku konunum. „Þetta eru allt krakkar og hver gerði ekki einhverjar gloríur á þessum aldri án þess að þurfa að lenda í hakkavél heimspressunnar. Guði sé lof að ekki var til Snapchat í gamla daga.“ Auðvitað sé agalegt að virða ekki reglur, en refsing allra hlutaðeigandi sé nú þegar orðin sár og mikil, einnig fyrir þá sem standa þeim nærri. „Fyrir ári eða svo voru hugtök á borð við sóttkví fyrst og fremst fræðilegur möguleiki, en nú eru breyttir tímar. Því miður. Ég vona að allt þetta unga fólk komist fljótlega yfir þessi ósköp og við förum að tala um eitthvað annað. Ég hef orðið vaxandi óþol fyrir sífelldum kröfum um galdrabrennur nútímans.“