Nadía blæs á sögu­sagnir um Love Is­land

Nadía Sif Lín­dal Gunnars­dóttir er ekki á leiðinni að taka þátt í bresku raun­veru­leika­þáttunum Love Is­land. Þetta segir hún í sam­tali við Frétta­blaðið.

Þar segir að þrá­látur orð­rómur hafi verið uppi um að Nadía myndi taka þátt í ár. Þættirnir eru teknir upp í sólar­löndunum ár hvert í glæsi­villu og eru eins­konar stefnu­móta­þættir þar sem þó er hægt að vinna peninga­verð­laun.

Nadía Sif, sem varð heims­fræg eftir stutt kynni við ensku fót­bolta­mennina Phil Foden og Mason Greenwood, segist ekki einu sinni hafa sótt um. Hún hafi þó heyrt þessa orð­róma sem um ræðir.

„Ég hef ekki einu sinni sótt um,“ segir hún. Alla­jafna taka bara fal­legustu ein­staklingar á Bret­lands­eyjum þátt í þátta­röðinni. Á­höld hafa verið uppi um það hvort nýjasta serían verði tekin upp á Bret­lands­eyjum.

Hins­vegar stefna fram­leið­endur að því að taka þættina upp á Mall­or­ca síðar á þessu ári. Strangar CO­VID-19 reglur verða í gildi líkt og þekkist í raun­veru­leika­þáttum líkt og Bachelor.