Myndin sem mamma Sól­veigar geymdi: „Þetta er eigin­lega best. Fékk smá ryk í augað“

„Þessa mynd hefur mamma mín geymt,“ segir Sól­veig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, í færslu á Face­book-síðu sinni í gær.

Þar birti hún býsna skemmti­lega mynd sem hún teiknaði þegar hún var lítil; mynd af hópi fólks sem var að berjast fyrir sömu launum.

„Kröfu­kánka og krafan ein­fald­lega þessi: Sömu laun. Ég hef, tæpum fjórum ára­tugum seinna, lítið upp­fært kröfuna. Hef ein­faldan smekk, vel að­eins það besta,“ segir hún en það virðist snemma hafa orðið ljóst hvað Sól­veig Anna ætlaði sér að fást við á full­orðins­árunum.

Myndin hefur vakið tals­verða at­hygli meðal vina og vanda­manna Sól­veigar Önnu. „Þetta er eigin­lega best. Fékk smá ryk í augað,“ segir Margrét Tryggva­dóttir, fyrr­verandi þing­kona. „Frá­bært. Þú áttir góða mömmu,“ bætir Þor­leifur Gunn­laugs­son, fyrr­verandi borgar­full­trúi við, í at­huga­semd við færsluna.

Myndina má sjá hér að neðan:

Þessa mynd hefur mamma mín geymt. Kröfukánka og krafan einfaldlega þessi: Sömu laun. Ég hef, tæpum fjórum áratugum seinna, lítið uppfært kröfuna. Hef einfaldan smekk, vel aðeins það besta.

Posted by Sólveig Anna Jónsdóttir on Sunnudagur, 14. febrúar 2021