Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, bakþankahöfundur Fréttablaðsins, hefur tekið þá ákvörðun að breyta út af vananum nú þegar sumarfrí til útlanda er á næsta leiti.
„Nýverið týndust ferðatöskur farþega heillar flugvélar Icelandair, einhvers staðar á erlendum flugvelli. Myndir af þeim sama flugvelli sýna mikil töskufjöll sem væntanlega innihalda sundföt, sandala og sumarkjóla ævintýraþyrstra ferðalanga,“ segir Jóhanna Vigdís í bakþönkum blaðsins í dag.
„Verandi á leið í frí hefur ljósmyndin af töskufjallinu ásótt mig, ég segi ekki daga og nætur en þó verið ofarlega í huga. Svo mikið reyndar að ég hef tekið þá ákvörðun, eftir ítarlega mismunargreiningu, að fara í þriggja vikna frí til útlanda með handfarangur. Ekkert nema handfarangur,“ segir hún á léttu nótunum í pistli sínum.
Hún segir að eiginmaður hennar sé í hláturskasti yfir þessu og bendi henni reglulega á að hann verði með stóra ferðatösku með sér (sem endar líklega í töskufjallinu) ef hún vill setja eitthvað ofan í hana.
„Sem ég tel vera óþarfa. Enda hef ég ákveðið að losa mig við allan óþarfa farangur í þessari ferð. Það á við um öll auka skópörin, enda hefur greining mín sýnt að ég þarf bara eitt par af strigaskóm og eitt par af sandölum. Þá er hæpið að ég þurfi að taka mína eigin hárþurrku með í ferðina. Já, það hefur komið fyrir í vinnuferðum. Enda ekki á vísan að róa þegar kemur að gæðum hárþurrka á hótelherbergjum. Þá mun ég sleppa straujárninu, enda sólarfrí en ekki vinnuferð,“ segir hún.
Boðskapurinn er sá að farangurinn sem við dröslumst við í gegnum fríið og lífið almennt er allskonar – og megnið af honum óþarfi.
„Sumarfríið er rétti tíminn til að losa okkur við allt draslið sem þyngir okkur (og flugvélarnar). Svo komum við endurnærð til baka, búin að hreinsa til á harða diski höfuðsins. Og förum lóðbeint í að þrífa geymsluna.“
Myndin hér að neðan birtist í Fréttablaðinu á dögunum en hún er frá flugvellinum í Hamborg í Þýskalandi þar sem Íslendingur lenti í vandræðum með að finna töskuna sína.