Myndi ekki komast upp með að selja sumarbústað á þennan hátt

„Ég kemst ekki upp með það að selja sum­ar­bú­stað í eigu VR sem kost­ar 40 millj­ón­ir eða meira á 35 millj­ón­ir án þess að þurfa að svara fyr­ir það með af­sögn. Ég gæti ekki skellt skuld­inni á ein­hvern ráðgjafa, fast­eigna­sala eða ann­an. Ég kæm­ist ekki upp með það.“

Þetta segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í samtali við mbl.is. Tilefnið er Facebook færsla sem hann skrifaði í dag um sölu ríkisins á hlut sínum í Íslandsbanka.

„Mér finnst þetta holgerv­ing­ur spill­ing­ar, ef ég á að vera al­veg hrein­skil­inn,“ seg­ir Ragn­ar Þór við mbl.is um málið. Banka­sýsla rík­is­ins seldi í útboðinu 22,5% hlut í bank­an­um fyr­ir tæpa 53 millj­arða króna en hefði fengið um tveim­ur millj­örðum hærra verð ef markaðsgengi þriðju­dags­ins hefði gilt.

Ragnar segir að sér finnist að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, eigi að segja af sér vegna málsins.

„Það ligg­ur al­veg fyr­ir að fjár­fest­ar voru til­bún­ir til að borga mun hærri hlut en það gengi sem var síðan ákveðið að selja á. Það þarf að kalla eft­ir al­gjöru gagn­sæi í þessu ferli.“