Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri Íslands, birti skemmtilegt myndband af hrafni með þröst í kjaftinum fyrir utan Seðlabankann í dag.
„Hrafn gerir sér þröst að góðu fyrir utan Seðlabankann. Og mér sýnist krummi bara býsna glaður með krás á kaldri steypu. Heillamerki hefði þetta einhvern tíma verið talið. Guð launar fyrir hrafninn stendur einhvers staðar,“ skrifar Ásgeir við myndbandið.
„Smá neðanmálsgrein: Hrafninn er fyrst og fremst hrææta - og því hefur þrösturinn örugglega verið dauður áður en Krummi náði í hann,“ bætir hann við.