Myndband dagsins er tekið á Skálavíkurheiði í gær þar sem Bolvíkingar blása snjó af veginum. Myndbandið er algjörlega magnað.
Bolvíkingurinn Hafþór Gunnarsson birtir myndbandið. Eins og sjá má er snjómagnið á heiðinni ekkert lítið.
„Þegar Elvar byrjar að blása stendur ekkert fyrir. Það sést best á því að núna er hann uppá Skálavíkur heiði að blása og er snjódýptin allt að fjórum metrum,“ skrifar Hafþór.